Flæktu ekki líf þitt að óþörfu

Thursday, March 31, 2005

Hið daglega líf

Jæja, þá er maður kominn aftur í vinnuna eftir páskafrí. Ég fór ekkert í fríinu en hvíldi mig vel. Agnes,Anna Rós, Nói, Bjarki Freyr og Rebekka komu í mat en Pálína Ósk og Birgir eru erlendis, í New York. Þau koma á morgun sem betur fer. Ég hef verið að passa tík og hvolpinn hennar sem Pálína á og það er meira en að passa barn!
Það er ágætt að koma í vinnuna aftur, heilmikið að gera. Svo er ég að leggja lokahönd á ritgerð um Önnu Sigurðardóttur sem var merkileg kona og langt á undan sinni samtíð hvað varðar hugmyndir um stöðu kvenna.

Thursday, January 27, 2005

Tilraun

Jæja þá er að athuga hvort þetta er hægt. Blogg hefur ekki verið mín sérgrein hingað til en hver veit, kannski maður eigi eftir að blogga daglega. Það er afskaplega rólegt í vinnunni í augnablikinu, sem er óvanalegt. Mér hafði verið boðið í matarboð í gærkveldi til Tótu í unglingaathvarfinu en steingleymdi því ! Þegar maður kemur heim er maður úrvinda og man ekki einu sinni það sem er skemmtilegt. Annars er ég að vinna verkefni í KHÍ sem þarf að skila um helgina. Læt þetta nægja að sinni.

Sunday, January 09, 2005

janúar 2005

Prófa hvort þetta virkar.

Thursday, July 08, 2004

Maður er alltaf að læra eitthvað nýtt!

Vonandi get ég nýtt mér bloggið.

Ekki flækja líf þitt að óþörfu

Ég er að prófa að blogga hjá Guðrúnu Völu í Borgarnesi.